24.05.26

Stýrir framleiðslu í magnesíumverksmiðju Njarðar
Lesa fréttatilkynninguna í heild sinni hjá Viðskiptablaðinu
Ásgrímur Eiríksson hefur verið ráðinn framleiðslustjóri Njarðar sem vinnur að uppbyggingu framleiðslu á magnesíummálmi úr sjó með nýrri íslenskri tækni.
Ásgrímur Eiríksson hefur verið ráðinn framleiðslustjóri Njarðar. Njörður var stofnað árið 2023 og og vinnur að uppbyggingu framleiðslu á magnesíummálmi úr sjó með nýrri íslenskri tækni.
Ásgrímur er vélaverkfræðingur með meistaragráðu frá Danmarks Tekniske Universitet (DTU), þar sem hann sérhæfði sig í sjávar- og hafverkfræði. Hann býr yfir víðtækri reynslu af tæknilegum rekstri, hönnun og uppbyggingu flókinna kerfa.
Áður starfaði Ásgrímur hjá Linde Gas, þar sem hann kom meðal annars að hönnun og uppsetningu tæknikerfa fyrir landeldi og veitti viðskiptavinum á Norðurlöndum tæknilega ráðgjöf. Hann rak jafnframt eigið fyrirtæki, Veitutækni ehf., og starfaði áður hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Hjá Nirði mun Ásgrímur leiða uppbyggingu og rekstur fyrstu framleiðslueiningar félagsins, tryggja faglega innleiðingu framleiðsluferlisins og gegna mikilvægu hlutverki í næsta áfanga uppbyggingar Njarðar.







Njörður ehf.
Suðurgata 22
101 Reykjavík
Ísland
njordur@njordur.com