Þrátt fyrir mikilvægi magnesíums á engin frumvinnsla á málminum sér stað í Evrópu. Yfir 90% af framboði heimsins kemur í dag frá Kína, þar sem vinnslan byggist á kolaknúnum dólómítnámum.
Þessi aðferð er ein sú skaðlegasta sem hugsast getur við málmvinnslu. Hún losar gríðarlegt magn af koldíoxíði og skilur eftir sig eitraðan úrgang.
Njörður framleiðir magnesíum með sjálfbærum hætti og getur verið stefnumótandi hlekkur í framtíð græns iðnaðar í Evrópu, þar sem nauðsynleg efni eru framleidd í sátt við náttúruna.

Við erum að reisa fyrstu frumvinnslustöðina í Evrópu í marga áratugi sem hönnuð er frá grunni með það fyrir augum að vera laus við neikvæð umhverfisáhrif hefðbundinna aðferða.
Með því að vinna magnesíum beint úr sjó með hreinni, íslenskri orku, er ferlið kolefnishlutlaust auk þess sem engar eitraðar aukaafurðir verða til.

Magnesíumblöndur standa sambærilegum álvörum framar þegar kemur að styrk miðað við þyngd.
Jafnframt eru þær einstaklega tæringarþolnar, sem skilar sér í endingarbetri íhlutum og mun lengri líftíma en næst með hefðbundnum málmblöndum.
Þessir eiginleikar gera kleift að hanna léttari, þynnri og endingarbetri vörur sem mikil eftirspurn er eftir í bílaiðnaði og öðrum hátæknigreinum.

Njörður reisir nú fyrstu klórframleiðslustöðina á Íslandi, framkvæmd sem markar tímamót og hefur bæði efnahagslega og umhverfislega þýðingu.
Í dag er klór aðallega fluttur til landsins í formi klórblandaðra efna, svo sem natríumhýpóklóríts, sem geta innihaldið allt að 85% vatn. Það þýðir að Ísland, sem þekkt er fyrir gnægð hreins vatns, flytur inn erlent vatn með tilheyrandi kostnaði og umhverfisáhrifum.

Njörður ehf.
Suðurgata 22
101 Reykjavík
Ísland
njordur@njordur.com